06.10.2011 18:39
Mótorhjólaferð 2011
6. október 2011
Jæja þá er best að fara að skrifa eitthvað um ferðina okkar Viðars. Við flugum með Icelandexpress til London að morgni 28. September og héldum síðan áfram til Munic kl. 18.30 með Easyjet, en það var eins og að koma úr gripaflutningavél, þröngt á milli sæta og allt þröngt með Icelandexpress í lúxusvél, nóg pláss á milli sæta og gott pláss, þó að þetta séu hvorutveggja lággjalda flugfélög.
Fórum frá Munic um morguninn 29. til Friedrichshafen þar sem við vorum í tvær nætur, fórum þar á meðal í Zeppelin safnið og ráfuðum um bæinn. Frá Friedrichshafen fórum við til Italíu að vatni sem heitir Lago Di Como og vorum þar einnig í tvær nætur í litlum bæ sem heitir Sórico við norðurenda vatnsins. Á leiðinni þagnað fórum við fjallveg sem heitir Pso d Splüga, þetta er sá vegur sem mér hefur fundist hrikalegastur að aka, hvort sem það er í bíl eða hjóli, beigjurnar voru fóru stundum alveg í hring, en það var fallegt á þessari leið þó að hún væri mikil auðn á þessu svæði. Síðan daginn eftir ókum við hringin í kringum vatnið og mættum mikið af hjólafólki sem var á hringferð um vatnið eins og við, veðrið var bara allt of heitt, 30°+ og mikið mystur. Eftir þessa daga fórum við sem leið lá til Lago Di Garda og vorum einnig þar í tvær nætur í litlu fjölskyldu hóteli við suðurenda vatnsins. Bærin þar heitir Lazise. Ókum hringin í kringum vatnið sem fallegt landslag en skyggnið var afar lélegt. Stoppuðum nokkrum sinnum til að taka myndir en það var allt í mystri. Nú var farið af stað eftir þessar tvær nætur og tekin hraðbrautin norður til Garmisch-Partenkirchen, en það er verið að spá kólnandi veðri í Ölpunum og við ætlum ekki að taka sjens á að verða innliksa á Ítalíu og hérna erum við núna og erum að hugsa um að taka annaðhvort kláf eða lest upp á hæsta tind Þýskalanda Zugspitze sem er í 2962 metra hæð. En núna er það næsta vers að fara í morgunmat, ég er orðin fjandi svöng.
Við fórum reindar ekki upp á hæsta fjallið heldur upp á fjall sem er 1000 metrum lægra og heitir Sonnenalm og er 1.780 metrar, þar var mjög gott útsýni. Næst er að fara til Munic á morgun og þaðan eitthvað suður á Ítalíu akandi á bíl með Bjarka og Tínu, meira um það eftir þá ferð. Kveðja úr allt of miklum hita, en það er verið að spá rigningu næstu daga.
03.07.2011 20:56
Vorferð á Hjólum um Þýskaland
Hjólaferð um Evrópu maí 2011
Dagur 1 10. maí
Erum búin að hjóla frá Vogum og til Hafnar í Hornafirði, það var rigning þegar við fórum af stað og ókum við í einum áfanga á Hvolsvöll. Var byrjað á að tanka og yljað sér á kaffi og smá næringu. Þar hittum við 3 hjólamenn á Harley hjólum sem voru á sömu leið og við, hittum síðan 2 þeirra aftur á Hornafirði. Stoppuðum því næst á Freysnesi í smá hressingu og enduðum á hótel Höfn www.rikivatnajokuls.is/hotelhofn. En á leið þangað fengum við slagveðurs rigningu og þá var nú gott að vera í regngalla frá Rúnari og Möggu. Fengum okkur kvöldmat á Höfn og síðan var gott að fara að sofa, en við höfum ekki hjólað neitt að ráði síðasta ár. Hótelið á Höfn er dýrt og miðað við 4* þá er eiginlega lágmark að veggir séu ekki allir sprungnir á herbergjunum og að ljósaperur séu heilar þannig að það sé ekki bara 1 ljós í herbergi og 2 á baði þar sem að perustæðin voru mikið fleirri , en það voru sprungnar perur, en þarkostaði herbergið 28.000 kr. Dýrasta og lélegasta hótelið í ferðinni..
Dagur 2 11. maí
Fórum frá Höfn eftir að vera búin að fá okkur morgunmat og bensín á hjólin. Fengum ágætisveður í byrjun, þurrt og bjart að mestu en þegar við fórum að nálgast Þvottárskriðurnar fór að blása, blásturinn jókst jafnt og þétt þangað til að það var komið hífandi rok, þannig var veðrið þangað til við komum á Stöðvafjörð þar sem við tókum bensín en þá fór að lygna aftur. Við fórum yfir Fagradal í 3°c og þokurigningu. Stoppuðum á Egilsstöðum til að fá okkur næringu og fara í vindstopper, það var svo skrambi kallt, svo var haldið áfram yfir Fjarðarheiðina í þoku svo það sá varla á milli stika og 1°c , við áttum von á að það væri hálka og ekið í samræmi við það. Vorum komin á Seyðisfjörð fljótlega eftir hádegi og reyndum að eiða tímanum í kulda og trekk uns við gætum farið um borð í Norrænu. Um borð vorum við kominn um kl. 18,30. Komum dótinu fyrir í káetuni og skiptum um föt, fórum því næst niður í matsal og fengum okkur kvöldmat sem við vorum búin að kaupa okkur fyrirfram. Það verður að segjast eins og er að maturinn í Norrænu er ekkert sérlaga góður hann var betri í fyrri ferðum sem við höfum farið.
Dagar 3 og 4 12. og 13. maí
Vorum um borð í Norrænu með viðkomu í Færeyjum þessa daga og létum okkur líða vel. Fórum í land í Færeyjum og gengum um Þórshöfn í nokkra tíma, fórum síðan aftur um borð og slökuðum á. Síðasta kvöldið var Víkingarþema í matsalnum en ég verð að viðurkenna að maturinn var alls ekki góður og ég varð fyrir vonbrygðum.
Dagur 5 14. maí
Komum til Hirtshals kl 9,00 um morgunin, að fengnum morgunmat fórum við frá borði. Hjóluðum til Öster Hurup, Hadsund til Bryndísar og Sigga þar sem við fengum frábærar móttökur, þau búa á gömlum búgarði sem er búið að leggja niður sem slíkur og selja alla jörðina undir sumarhús. Þar skar Viðar ofan af skyggninu á hjólinu svo að hann sæi almennilega framm fyrir sig á ferð sérstaklega í rigningu, þangað kom annar gamall Vogabúi, Rúnar, sem er búsettur skammt frá Sigga og Bryndísi, hann kom með góða stingsög til að saga ofan af skyggninu. Ég er svo heppin að ég er með rafmagn sem ég færi skyggnið upp og niður hjá mér. Sigríður Vigdís sysurdóttir mín og Ívar maðurinn hennar komu þangað með börnin og mikið var ánægjulegt að hitta þau svona óvænt en þau eru búin að vera úti í námi í nokkur ár. Hjóluðum af stað til Jels sem er bær á suður Jótlandi þar vorum við búin að panta gistingu í eina nótt í www.aquacow.dk/bedbreakfast , fengum herbergi með 4 rúmum, en okkur dugðu 2. Það er galli við þennan bæ að það er helst ekki hægt að fá mat nema á einum pizzastað þar sem við pöntuðum okkur pítu, en hún var svo stór að það hefði dugað ein fyrir okkur bæði. þegar við vorum nýlögð af stað frá Hadsund þá fór að rigna og rigndi meirra og minna þangað til við vorum komin í náttstað. Fórum snemma að sofa, það var ekkert við að vera þarna, Nína, var flutt annað og ég var ekki með heimilisfangið hennar. gamall vinnufélagi sem bjó þarna áður.
Dagur 6 15. maí
Byrjuðum á að fara í morgunmat sem var ágætlega vel útilátin og síðan hjólað af stað í rigningu. Fórum sem leið lá til Hamborgar og þaðan eftir sveitavegum um gamla Austur Þýskaland og þar á eftir að gera ansi mikið til að ná vestrinu, hús eru þarna víða hrörleg og hálfhrunin en samt er búið að taka til á flestum stöðum. Þarna er víða ennþá hægt að sjá hvar samyrkjubúin voru og eru sum enn. Þarna er víða fallegt. Á þessari leið fengum við alveg hellirigningu og haglél, við vorum svo heppinn að þarna var gömul olíubyrgðastöð með þaki sem við leituðum skjóls undir, þegar ég stóð upp af hjólinu var snjóskafl á sætinu fyrir aftan mig, þvílíkt veður. Við gistum á litlu sveitahóteli í bænum Buchholz , www.hotel-prignitzer-hof.de þetta er gamalt hótel sem á árum áður hafði hýst þekkta einstaklinga. Þarna gátum við geymt hjólinn í bakgarði þar sem okkur var bent á að setja hjólin undir skýli á barnum. Þarna var gott að borða og ódýrt að gista einnig var ágætis morgunmatur á borðum um morguninn.
Dagur 7 16. maí
Nú var haldið af stað í áleiðis til Berlinar þar sem við gistum eina nótt á www.ibishotel.com við Postdamerplatz vorum búin að hugsa okkur að gista þar 2 nætur ef það væru laust herbergi, en svo var ekki þannig að við bókuðum herbergi eina nótt. Við settum hjólin niður í bílageymslu og fórum gangandi niður í Sonycenter og þaðan í stóra og mikla verslunarmiðstöð þar sem við keyptum okkur gallabuxur og boli, þarna fengum við okkur jarðaberjaterusneið sem var eiginlega alveg heil máltíð hún var bara nokkuð góð. Nú er aftur byrjað að rigna en það er búið að vera að mestu leiti þurrt þennan dag, hlupum heim á hótel og hættum við að fara út að borða og fengum okkur mat á hótelinu.
Dagur 8 17. maí
Þar sem hótelið var fullt og spáð rigningu þá ákváðum við að halda áfram för og hjóla til Leipzig. Fengum ágætis veður á þessari leið og ferðin gekk bara nokkuð vel. Gistum á www.novotel.com þar var mjög gott að gista. Þar sem bílageimslan var full þá var okkur boðið að geyma hjólin í hjólageymslu starfsmanna við hliðina á eldhúsinu. Leipzig er mjög falleg borg, hrein og snyrtileg með margar fallegar byggingar. Fengum okkur kvöldmat við mjög þrönga götu þar sem voru bara veitingahús, mjög sérstakt. Þarna vorum við búin að ákveða að vera 2 nætur en það var allt fullbókað og við nenntum ekki að færa okkur á annað hótel.
Dagur 9 18. Maí
Frá Leipzig áleiðis til Austurríkis fórum við smáspöl á hraðbraut þar sem við stoppuðum smástund, þar var skriðdreki á vagni sem við máttum til með að taka myndir af, síðan var hjólað um sveitavegi til bæjar sem heitir Sulzbach-Rosenberg þar sem við gistum á flottu hóteli www.sportpark-suro.de , það er eini staðurinn sem við höfum gist á sem hægt hefur verið að sofa við opin glugga, það var flugnanet fyrir öllum gluggum og verulega flott. Þetta er mjög fallegur bær með gömlu klaustri.
Dagur 10 19. maí
Nú vorum við komin í endalausa sól. Ókum um fallega grasigróin dalvörp. Eftir sporthótelið gistum við á www.gasthof-stoeckler.at , þar eru herbergin lítil en alltaf er allt hreinnt þetta hótel er í bænum Enns rétt hjá Linz í Austurríki og þar fengum við að geyma hjólin inni í porti sem var lokað allan hringin, mjög notalegur staður en herbergi frekar lítil eins og svo mörgum stöðum sem hafa verið gerð upp og til að mæta kröfum nútímans þá er herbegið minnkað til að koma fyrir baðherbergi en allt hreint og ágætis kvöldmatur. Fórum eins og vant var snemma að sofa.
Dagur 11 og 12 20.-22. maí
Komum til Vínaborgar um kl 1400 . Hingað ókum við rómantísku leiðina meðfram Dóná, mjög falleg leið, og hér er komið sumar, allur gróður komin í sumarskrúða og frjókornin svífandi um allt. undanfarna daga er hitastigið búið að vera 25-30°c og það finnst okkur allt of mikið fyrir kuldabeltisdýr eins og okkur. Hingað til hefur ferðin gengið afbragðs vel og höfum við ellt veður frekar en landsvæði.og ætluðum að vera fljót á hótelið sem við vorum búin að panta, Hótel Eurostar Landstrasse 120, en það var ekki svona auðvelt eins og við ætluðum, fyrst komum við inn í borgina og garminn leiddi okkur á "réttan" stað, þegar þangað var komið þá kom flagg á garmin og við komin á endastöð, EN svo var nú ekki, það var ekkert hús á þessum stað. Nú var aftur farið að leita og allt sama sagan, svona fórum við þrjá hringi þangað til að við tókum beygju til vinstri í stað hægri og stoppuðum úti í knanti. Við fórum að spyrja til vegar, fyrst spyrðum við konu sem var þarna á ferð en hún vissi ekkert í þessu hverfi. Eftir góða stund kom þarna karlmaður og benti okkur á götu þarna rétt hjá sem gæti verið gatan. Nú var haldið aftur af stað og farið á þessa götu sem maðurinn benti á, þegar við vorum að keira eftir götuni heirðist allt í einu í talstöðinni hjá mér"hérna er hótelið, við erum við hliðina á því" í sama mund var tekin kröpp vinstri beygja og inn á plan. Mikið rétt þetta var hótelið www.eurostarsembassy.com . Þegar ég var búin að fara inn og ganga frá herberginu þá var farið með hjólin í bílastæðahúsið, Þegar þangað var komið var bíll fastur í beygju á leið niður í bílakjallarann og gat ekki neitt en það vissum við ekki á leiðinni niður því það var ekkert sem sagði okkur annað en að allt væri í lagi, nú voru góð ráð dýr, það þurfti að ýta hjólunum okkar upp svo að hægt væri að koma bíldrusluni til baka, en mikið rauk úr kúplinguni á bílnum. Mikið var nú gott að komast upp í herbergi og fara í sturtu, það var búið að vera hræðilega heitt þennan dag eins og nokkra fyrri daga. Eftir sturtu var farið út til að skoða næsta nágrenni og byrjað á pylsusjoppuni beint á móti hótelinu, síðan var farið í kaupfélagið til að kaupa smá nesti til að eiga upp á herbergi. Nú var komið að því að fara út að borða og þá lentum við inni á kínverskum veitingastað þar sem við fengum okkur soðna svínasíðu með sveppum og hrísgrjónum en þatta var mjög sterkt svo að ekki minnkaði hitin við þetta. Við fórum snemma að sofa, vorum orðin þreitt eftir daginn.
Við vorum búin að ákveða að vera tvær nætur í Vín og slaka á, vakna kl. 07,30 eins og aðra daga, fara í morgunmat, skoða borgina smá í leiðinni. Við fórum af stað að skoða borgina fljótlega eftir morgunmat, keyptum dagskort sem gilti fyrir lestakerfið og strætó. Þegar við vorum komin inn í miðborgina þá byrjuðum við að labba á milli staða og skoða. En eins og allir vita er mikið að skoða í borginni. Fórum meðal annars í sætsýn bæði rútu og bát, báturinn var algjör tíma og peningaeyðsla, það sást ekki neitt nema trén við ánna. Eftir þetta fengum við okkur að borða síðan upp á hótel uppgefin eftir daginn, fórum snemma að sofa.
Dagur 13 22.maí
Fórum frá Vínarborg eftir morgunmat, byrjuðum á smá hraðbrautarhoppi, síðan var hldið út á sveitavegina og ekið í suðurátt áleiðis til Graz en samt ekki alla leið. Alltaf er nú Austurríki fallegt og þó sérstaklega alparnir. Við vorum kominn í næsta náttstað sem var í bæ sem heitir Bischofshofen og gististaðurinn var www.gasthof-tirolerwirt.at og þar greiddum við fyrir gistinguna 76 ? nóttin fórum svolítið hratt á þennan áfangastað þar sem þessi leggur var svolítð langur.
Dagur 14 og 15 23-25.maí
Eftir morgunmat ókum við í mismikilli rigningu sem leið lá á sveitavegum til sumarleifisdvalarstaðar sem heitir Seehof www.camping-seehof.com sem er alveg meiriháttar staður með fallegri fjallasýn og rólegt með eindæmum, þarna er vel þess virði að fara í viku afslöppun, það var bara verst að Hjörtur og frú voru ekki á staðnum en það verður kanski seinna. Þegar þangað var komið var komin sól og 30°c hiti. Notuðum tíman til að slaka á og hjóla um nágrennið. Frá Seehof ókum við sveitavegi til Innsbruck og þaðan til Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi og þaðan sveitavegi til Munchen þar sem Bjarki og Tina tóku á móti okkur með grillveislu.
Dagur 16 26. maí
Í dag er Tina í frýi og það var búið að ákveða að fara suður að Achenrsee í Austurríki á hjólunum fjögur saman og fara þar siglandi eftir vatninu, en plani var breitt vegna veðurspár en það var búið að spá þrumuveðri í Ölpunum, við fengum lánaðan bíl hjá mömmu Tinu og ókum til Ulm sem er í ca 130 km. Í norðvestur frá okkur. Þetta er gamall og fallegur bær, bærinn tilheyrir tveim héruðum Þýskalands, Bayern og Baden Wurtenberg. Dóná rennur eftir miðri borginni og þar eru héraðsmörkin. Þarna skoðuðum við dómkirjuna og margar fallegar byggingar. Reyndar var hitin að plaga okkur fór upp í 30+. Eftir nokkura kl. göngu og marathlé fórum við til baka, komum við í útjaðri Regensburg þar sem Tina átti erindi og síðan fulla ferð heim. Settumst út í garðin og snæddum kvöldverð.
Dagur 17 27. Maí
Vöknuðum í ausandi rigningu, en í Munchen búum við í Íbúð rétt hjá Bjarka og Tinu, sem er í eigu foreldra Tinu. Fórum í smá búðarráp en síðan var ekið nær 100 km í suður til að ná í varahluti í Rótax flugvélamótor. Um kvöldið fórum við niður í bæ ásamt Bjarka og Tinu og fengum okkur að borða.
Dagur 18 28. Maí
Gott veður og spáð góðu í dag, fórum fjögur á tveim hjólum suður í Alpana, en höfðum ekki hjólað lengi þegar fór að rigna, en það stóð stutt en hitastigið var ekki nema 6-8c. Það hafði snjóað langt niður í miðjar hlíðar um nóttina. Þvældumst víða um Alpana þennan dag sem batnað þegar á leið. Um kvöldið var gengið frá hjólunum í bílskúr og bíða þau til haustsins nema hjólið hennar Sillu sem verður í notkunn hjá Bjarka.
Dagur 19 29. Maí
Vöknuðum frekar seint, en þetta er heimferðadagurinn. Eftir morgunverð pökkuðum við því sem við ætluuðum með heim í tvær litlar töskur, annað fór í geimslu hjá Bjarka og Tinu, en þau sóttu okkur um kl 11.00 til að fara til foreldra Tinu, en þangað var okkur boðoð í mat. Enn vorum við á bíl tengdamömmu Bjarka, þægilegur Benz jeppi. Þegar á staðin var komið beið okkar 3 rétt hádegisverður, að honum loknum var sest út á verönd í sól og blíðu þar sem bornar voru framm kökur og kaffi. Þarna dvöldum við þar til við kl 16.30, en þá var komin tími á að fara út á flugvöll. Flugið heim gekk snuðrulaust með millilendingu í Dusseldorf. Flugum á vegum Germanwings með Air Berlin, mjög afslappað og gott. Komum heim um kl. 24.00 en Helgi og Kolbrún sóttu okkur upp á flugvöll og óku okkur heim.
Það sem stóð uppúr
Það sem uppúr stendur eftir ferðina, engin vandamál með faraskjóta né annað en öfgar í veðri, vorum í þrumuveðri með hagléli, en daginn eftir í 35°c hiti. Við ókum af stæðstum hluta sveitavegi og þar ber hæðst gamla Austur Þýskaland, en víða eru vestræn áhrif lítt merkjanleg. Viðmót fólks áberandi hjálplegt og verðlag mun lægra en í vestrinu, einnig er Týról sérlega skemmtilegt með krefjandi vegakerfi í ölpunum og fallegt umhverfi. Varðandi gistingar var versta og langdýrast á Hótel Höfn í Hornafirði ca 38.000 kr nóttin ásamt kvöldmat og morgunmat í litlu og óhrjálegu herbergi en best var gistinginn á Sport hótel í Sulzbach-Rosenberg, sannkölluð svíta, borguðum ca 20.000 kr. nóttin með kvöld- og morgunverði, einnig mjög gott í A-Þýskri sveitakrá , hotel-prignitzer-hof í bænum Buchholz, nótt með kvöld og morgunverði ca 1.100 kr. allstaðar sem við gistum var hjólunum komið í skjól, ýmist í bílastæðahúsi á baklóð í reiðhjólageymslu starfsfólks og jafnvel á útibar á baklóð hótelsins. Hjóluðum nærri 4200 km úr Vogum til Munchen.
Bíðum í ofvæni eftir heimferðinni frá Munchen á hjólunum.
06.05.2011 21:17
Evrópuferð maí 2011
- 1
